[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]
Re: rglug: Re: rglug: Re: [Fwd: Re: OLPC]
On 2008-06-03, 14:45:28 (+0000), Arnar Birgisson wrote:
> Mér
> finnst fullkomlega eðlilegt að borga fyrir hugbúnað, enda hef ég lengi
> fengið borgað fyrir að búa til hugbúnað sjálfur. Hugmyndin að allur
> hugbúnaður ætti (eða jafnvel geti) verið opinn og frjáls finnst mér
> alveg út í hött.
Hér ætla ég að hnýta í aðeins: þó að hugbúnaður sé opinn og frjáls,
þýðir ekki að hann sé "ókeypis". Þetta er algengur misskilningur. :-)
Þó samfélagið gerði á morgun kröfu um að allur hugbúnaður yrði
"frjáls", yrði það í reynd afskaplega lítil ógn við starf flestra
tölvumanna.
Frjálsu skilmálarnir þýða vissulega að það getur verið vandasamt að
selja sama kóðann *oftar en einusinni*, en það þýðir ekki að maður geti
ekki fengið borgað fyrir að skrifa hann eða endurbæta.
Það er líka staðreynd að flestir í hugbúnaðarbransanum vinna við
viðhald eða sérsmíði; menn eru ráðnir til að leysa tiltekin vandamál
og kóðinn (og skilmálar hans) eru bara verkfæri til þess. Menn fá
yfirleitt ekki borgað fyrir kóðann sem slíkann, heldur fyrir vinnu og
lausn vandamála.
Sem vandamálaleysir, finnst mér frjáls hugbúnaður frábær, því hann
gefur mér fullt af tilbúnum lausnum til að byggja á. Ég hef ekki
fullt frelsi til að gefa hann út undir hvaða skilmálum sem er, en ég
get að sjálfsögðu rukkað fyrir vinnuna mína.
Frá sjónarmiði neytenda, er stærsti kostur frjálss hugbúnaðar að neytandinn
getur leitað til margra aðila (ekki bara höfundarins) þegar hann vill kaupa
endurbætur á tilteknum hugbúnaði. Auðvitað vilja þeir fá borgað fyrir vinnu
sína, en hugbúnaðurinn verður ekkert minna frjáls og opinn fyrir því.
Það er einnig fullrauhæft að skrifa hugbúnað og gefa út undir GPL, en
rukka svo fyrir nákvæmlega sama kóða undir öðru leyfi fyrir þá sem
ekki vilja lúta GPL skilmálunum af e-m ástæðum. Þetta er fýsileg leið
fyrir smærri verkefni þar sem forritarahópurinn er lítill og allir
sammála um að þetta sé "góð hugmynd".
Á mismunandi tímum í mínum ferli hef ég unnið eftir öllum þessum
"bissness módelum" og fengið borgað fyrir að skrifa opinn kóða með einum eða
öðrum hætti. Ég hef líka verið í aðstöðu til að sjá mikilvægan kóða lifa
eða deyja eftir því hvort kaupandi kóðans hafði aðgang að sorsinum eða ekki.
Frjálst != ókeypis, óskir eða kröfur um opinn hugbúnað eru engin ógn við
starfsframa almennra forritara. Linus Torvalds verður kannski aldrei jafn
ríkur og Bill Gates, en hann mun heldur aldrei líða skort.
> Sorry for the rant.. endaði líklega frekar off-topic.
Alls ekki, ágætir punktar allir saman. :-)
--
Bjarni Rúnar Einarsson
bre ( at ) klaki ( dot ) net
http://bre.klaki.net/
Use http://bre.klaki.net/bre/contact.shtml to bypass my spam filters.
PGP: 02764305, B7A3AB89