[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: rglug: Re: [Fwd: Re: OLPC]



-----BEGIN PGP SIGNED MESSAGE-----
Hash: SHA1

Ég er top-poster, afsakið.

Á þessum punkti langar mig að spyrja: Er til frjáls hugbúnaður sem gerir
það sem Microsoft Project gerir, og er í sama gæðaflokki?

Þessi umræða kom upp um daginn þar sem vinnufélagi minn hefur nýlega
kynnst frjálsum hugbúnaði og vill gjarnan skipta yfir. Eitt leyfi fyrir
MS Project kostar um 95000 krónur, eða 150 kílókall fyrir professional
útgáfu. Það er hreinlega of mikið. Það er allt í lagi að borga
sanngjarnt verð fyrir hugbúnað, en þetta er ekki sanngjarnt.

Staðreyndin er sú að kostnaðurinn við hugbúnað er eingöngu
stofnkostnaður af framleiðslu hans. Um leið og hann hefur verið unninn
upp geta fyrirtæki *gefið* hugbúnaðinn þess vegna án þess að tapa neinu,
þar sem að skortur er ekki til í stafrænum heimi. Allt umfram
stofnkostnað er pjúra gróði - sem er ástæðan fyrir því að bólan varð til
í upphafi: Aðlaðandi viðskiptamódel.

Þannig að spurningin stendur, og mig grunar að svarið sé nei.
Séreignarhugbúnaður á vel rétt á sér í þeim tilfellum þar sem frjálsir
aðilar sjá sér ekki ástæðu til að þróa sambærilegan hugbúnað, og hvað
"commercial" hugbúnað varðar (hér í merkingunni hugbúnaður sem notaður
er í viðskiptum og tæplega í öðrum tilgangi) þá held ég að stærsti
hlutinn sé einmitt þannig. Fyrir vikið eru ágætis kerfi eins og MiJob og
OpenWorkbench sem eru skítsæmileg, en bara ekki nóg.

Tillögur?

 - Smári



Arnar Birgisson wrote:
> Hæbb,
> 
> 2008/6/3 Geir Freysson <geir ( dot ) freysson ( at ) gmail ( dot ) com>:
>>> Getur einhver bent mér á póstlista þar sem fólk styður opna staðla, lítur
>>> frekar á Linux út frá viðskiptasjónarmiðum í bland við OSS frekar en ofurtrú
>>> á eitthvert "frelsi" sem í mínum huga er nær þrældómi.
>> Ég held þessi lýsing eigi við marga á einmitt þessum póstlista, rglug.
> 
> Mjög góður punktur. Sjálfum gæti mér ekki verið meira sama hvort
> hugbúnaðurinn eða stýrikerfin sem ég nota eru opin/frjáls eða whatnot
> - bara ef það virkar og er ekki e-ð helv. drasl (afsakið orðbragðið)
> eins og svo mikið af hugbúnaði er í dag (bæði opinn/frjáls og
> otherwise).
> 
> Ég nota ekki Windows af því það sökkar. Ekki af því M$ er evil eða af
> því það kostar pening, heldur af því ég hef mjög neikvæða reynslu af
> því. Ég nota OS-X og Linux af einmitt öfugum ástæðum, það hefur
> einfaldlega virkað ákaflega vel fyrir mig og oftar gerð það sem ég
> ætlaðist til af stýrikerfum. Ég nota sömu rök á annan hugbúnað. Mér
> finnst fullkomlega eðlilegt að borga fyrir hugbúnað, enda hef ég lengi
> fengið borgað fyrir að búa til hugbúnað sjálfur. Hugmyndin að allur
> hugbúnaður ætti (eða jafnvel geti) verið opinn og frjáls finnst mér
> alveg út í hött.
> 
> Með fullri virðingu fyrir fólki sem hefur þau sjónarmið (margir bestu
> vinir mínir eru í þeim hópi) að það sé betra að nota crappy opið
> myndvinnsluforrit (sem dæmi) frekar en að borga sanngjarnt verð fyrir
> vandaða lokaða vöru finnst mér svolítið einstrengingslegt og lýsir að
> mínu mati ákveðinni þröngsýni. Framþróun verður þegar fólk metur alla
> möguleika með opnum huga.
> 
> Ég fíla tækniatriðin í botn. Mér finnst massa gaman að stússast í
> kerfum og hugbúnaði sem krefjast töluverðrar hugsunar og vinnu við að
> koma upp og í gang, ef það virkar svo rétt. Ég geri mér grein að ég
> tilheyri líklega minnihlutahópi að því leyti (þó ekki á þessum
> póstlista, sem er ástæðan fyrir því að ég er hér) og að flestir líta á
> hugbúnað öðrum augum. Gallinn er að á heildina litið er
> quality-control í hugbúnaðargerð í dag í algjöru lamasessi - það er
> það sem ég vil reyna að breyta og bæta.
> 
> Sorry for the rant.. endaði líklega frekar off-topic.
> 
> kv,
> Arnar
> 


- --
Smári McCarthy
smari ( at ) yaxic ( dot ) org   http://smari.yaxic.org
(+354) 662 2701   - "Technology is about people"
-----BEGIN PGP SIGNATURE-----
Version: GnuPG v1.4.6 (GNU/Linux)
Comment: Using GnuPG with Mozilla - http://enigmail.mozdev.org

iD8DBQFIRV3e9cJSn8kDvvERAi2NAJ91pvaNL8nt7kOrbIqbVkRsuwwYrwCgmQ7Y
p/hkCqvPnf4KPrj5Jz8kPWU=
=6E4h
-----END PGP SIGNATURE-----