> Nei, þarna er ég ekki sammála. Linux er Linux. GNU/Linux er eitthvað
> hugarfóstur frá RMS. Ok, Linux í dag hefði aldrei orðið eins og það er, ef
> GNU tækin væru ekki..... en hvar á að stoppa? Hvað með: Apache/GNU/Linux?
> Eða... MySQL/APACHE/GNU/Linux ? Eða:
> KDE/GNOME/X11/MySQL/PostgreSQL/Subversion/Git/Wu-FTPD/Perl/Apache/BIND/Sendmail/GNU/LINUX?
Ég vil ekki að þessi þráður fari út í eithvað rifrildi um heitið
GNU/Linux og Linux en ég vil benda á eftirfarandi.
Þessi gagnrýni væri fullkomlega rétt hjá þér ef "GNU/Linux" heitið
væri tilraun til að nefna þá frumkóðagrunna sem væru stærstir í hverju
unix-líku kerfi eða þá sem væru hvað mest notaðir en það er ekki
tilfellið, ef þú lest hvað Stallman hefur um þetta að segja[1].
Eins og stendur í greininni[1] er þetta að hluta til er þetta vegna
þess að RMS er með ákveðna skilgreiningu á stýrikerfi sem GNU kerfið
eins og það er í dag (fyrir utan kjarnann) nær nokkurn veginn utan um.
En að mestu leiti vill hann nota GNU/Linux heitið því hann vil að fólk
minnist þess að kerfið stendur fyrir frelsi, og honum finnst "Linux"
ekki standa fyrir hugbúnaðarfrelsi en GNU geri það þvert á móti.
Þetta er eitthvað sem mig grunar að þú eigir auðvelt með að vera
ósammála og það er í fínasta lagi. Sjálfur segist ég bara nota Debian,
Linux, unix-lík kerfi, eða kannski GNU/Linux til að aðgreina það frá
embedded Linux kerfum. En þessi gangrýni þín um að það eigi að nefna
fjölmörg kerfi og pakka innan skástrika samsvarast bara alls ekki því
sem kom frá hestinum, svo maður sletti aðeins.
Það er alveg rétt hjá þér, ég er ósammála þessu. Og samt er ég að nota Debian heima. Það breytir því ekki að mér finnst (persónulega) að RMS hafi "stolið" Linux, og eignað sér þetta, með því að setja GNU fyrir framan. Hví ætti þetta ekki að heita: Linux/GNU?
En... látum svo vera, og höldum bara áfram að vera ósammála.
Ég stend fast við, og mun halda áfram að standa fast við þessa skoðun mína, að RMS sé að ota sínum tota með þessu.
Bendi á wikipedia grein:
http://en.wikipedia.org/wiki/Linux_naming_controversy
En... verum bara sammála um það að vera ósammála. (Því að ég mun ekki bifast á þessu.)
Og, til að plata Godwin ...
HITLER!!!!
(ég? þú? þið? við? hinir? þeir? þær? þau? Hver veit?)
Kveðja,
--
EinarI