[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: rglug: Re: [Fwd: Re: OLPC]



Hæbb,

2008/6/3 Geir Freysson <geir ( dot ) freysson ( at ) gmail ( dot ) com>:
>> Getur einhver bent mér á póstlista þar sem fólk styður opna staðla, lítur
>> frekar á Linux út frá viðskiptasjónarmiðum í bland við OSS frekar en ofurtrú
>> á eitthvert "frelsi" sem í mínum huga er nær þrældómi.
>
> Ég held þessi lýsing eigi við marga á einmitt þessum póstlista, rglug.

Mjög góður punktur. Sjálfum gæti mér ekki verið meira sama hvort
hugbúnaðurinn eða stýrikerfin sem ég nota eru opin/frjáls eða whatnot
- bara ef það virkar og er ekki e-ð helv. drasl (afsakið orðbragðið)
eins og svo mikið af hugbúnaði er í dag (bæði opinn/frjáls og
otherwise).

Ég nota ekki Windows af því það sökkar. Ekki af því M$ er evil eða af
því það kostar pening, heldur af því ég hef mjög neikvæða reynslu af
því. Ég nota OS-X og Linux af einmitt öfugum ástæðum, það hefur
einfaldlega virkað ákaflega vel fyrir mig og oftar gerð það sem ég
ætlaðist til af stýrikerfum. Ég nota sömu rök á annan hugbúnað. Mér
finnst fullkomlega eðlilegt að borga fyrir hugbúnað, enda hef ég lengi
fengið borgað fyrir að búa til hugbúnað sjálfur. Hugmyndin að allur
hugbúnaður ætti (eða jafnvel geti) verið opinn og frjáls finnst mér
alveg út í hött.

Með fullri virðingu fyrir fólki sem hefur þau sjónarmið (margir bestu
vinir mínir eru í þeim hópi) að það sé betra að nota crappy opið
myndvinnsluforrit (sem dæmi) frekar en að borga sanngjarnt verð fyrir
vandaða lokaða vöru finnst mér svolítið einstrengingslegt og lýsir að
mínu mati ákveðinni þröngsýni. Framþróun verður þegar fólk metur alla
möguleika með opnum huga.

Ég fíla tækniatriðin í botn. Mér finnst massa gaman að stússast í
kerfum og hugbúnaði sem krefjast töluverðrar hugsunar og vinnu við að
koma upp og í gang, ef það virkar svo rétt. Ég geri mér grein að ég
tilheyri líklega minnihlutahópi að því leyti (þó ekki á þessum
póstlista, sem er ástæðan fyrir því að ég er hér) og að flestir líta á
hugbúnað öðrum augum. Gallinn er að á heildina litið er
quality-control í hugbúnaðargerð í dag í algjöru lamasessi - það er
það sem ég vil reyna að breyta og bæta.

Sorry for the rant.. endaði líklega frekar off-topic.

kv,
Arnar