[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]
Re: rglug: Re: [Fwd: Re: OLPC]
GNU/Linux vs. Linux umræðan er alltaf skemmtileg.
Ég er viss um að þessi umræðu þráður endar með því að einhver minnist
á Þriðja Ríkið.
Bestu kveðjur,
Geir Ruby/Rails/Apache/GNU/Linux notandi.
2008/6/3 Kári Hreinsson <karihre ( at ) gmail ( dot ) com>:
> Sæll,
>
> Linux er linux, en án GNU kerfisins væri Linux kjarninn ekki neitt.
> Sama má segja í hina áttina. Þannig að réttilega á að kalla kerfið
> sem flestir nota GNU/Linux, orðið Linux eins og það er notað skil ég
> bara sem styttingu á GNU/Linux.
>
> - Kári
>
> 2008/6/3 Einar Indridason <einar ( dot ) indrida ( at ) gmail ( dot ) com>:
>>
>>
>> 2008/6/3 Gudjon I. Gudjonsson <gudjon ( at ) gudjon ( dot ) org>:
>>>
>>> Hæ aftur
>>>
>>> Jú, maður getur svo sem ekki gert annað en borið virðingu fyrir honum en
>>> það
>>> er þannig með sum stórmenni að þeim er best að hætta eftir ákveðinn tíma.
>>> Ég
>>> var alveg sammála honum um að það var réttara að kalla Linux, GNU/Linux en
>>> síðan ekki meir.
>>
>> Nei, þarna er ég ekki sammála. Linux er Linux. GNU/Linux er eitthvað
>> hugarfóstur frá RMS. Ok, Linux í dag hefði aldrei orðið eins og það er, ef
>> GNU tækin væru ekki..... en hvar á að stoppa? Hvað með: Apache/GNU/Linux?
>> Eða... MySQL/APACHE/GNU/Linux ? Eða:
>> KDE/GNOME/X11/MySQL/PostgreSQL/Subversion/Git/Wu-FTPD/Perl/Apache/BIND/Sendmail/GNU/LINUX?
>>
>> Nei, að mínu mati er þetta krafs í bakkann hjá GNU, að komast á
>> stýrikerfakortið... Hvað er HURD þeirra búinn að vera lengi í smíðum?
>>
>> Annað hvort allt, eða ekkert. Linux er Linux. GNU/Linux er í mínum
>> augum.... (pólitískt) skemmdarverk.
>>
>> Og, já, ég er bæði sammála RMS og ég er ósammála honum. Það gerir hann ekki
>> að grínista. Það gerir hann að hugsjónarmanni með ákveðnar skoðanir, og
>> hann fær alveg prik fyrir það.
>>
>> Kveðja,
>> --
>> EinarI
>>
>>
>>
>