[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]
Re: rglug: Re: [Fwd: Re: OLPC]
Sæll,
Linux er linux, en án GNU kerfisins væri Linux kjarninn ekki neitt.
Sama má segja í hina áttina. Þannig að réttilega á að kalla kerfið
sem flestir nota GNU/Linux, orðið Linux eins og það er notað skil ég
bara sem styttingu á GNU/Linux.
- Kári
2008/6/3 Einar Indridason <einar ( dot ) indrida ( at ) gmail ( dot ) com>:
>
>
> 2008/6/3 Gudjon I. Gudjonsson <gudjon ( at ) gudjon ( dot ) org>:
>>
>> Hæ aftur
>>
>> Jú, maður getur svo sem ekki gert annað en borið virðingu fyrir honum en
>> það
>> er þannig með sum stórmenni að þeim er best að hætta eftir ákveðinn tíma.
>> Ég
>> var alveg sammála honum um að það var réttara að kalla Linux, GNU/Linux en
>> síðan ekki meir.
>
> Nei, þarna er ég ekki sammála. Linux er Linux. GNU/Linux er eitthvað
> hugarfóstur frá RMS. Ok, Linux í dag hefði aldrei orðið eins og það er, ef
> GNU tækin væru ekki..... en hvar á að stoppa? Hvað með: Apache/GNU/Linux?
> Eða... MySQL/APACHE/GNU/Linux ? Eða:
> KDE/GNOME/X11/MySQL/PostgreSQL/Subversion/Git/Wu-FTPD/Perl/Apache/BIND/Sendmail/GNU/LINUX?
>
> Nei, að mínu mati er þetta krafs í bakkann hjá GNU, að komast á
> stýrikerfakortið... Hvað er HURD þeirra búinn að vera lengi í smíðum?
>
> Annað hvort allt, eða ekkert. Linux er Linux. GNU/Linux er í mínum
> augum.... (pólitískt) skemmdarverk.
>
> Og, já, ég er bæði sammála RMS og ég er ósammála honum. Það gerir hann ekki
> að grínista. Það gerir hann að hugsjónarmanni með ákveðnar skoðanir, og
> hann fær alveg prik fyrir það.
>
> Kveðja,
> --
> EinarI
>
>
>