[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: rglug: Re: [Fwd: Re: OLPC]





2008/6/3 Gudjon I. Gudjonsson <gudjon ( at ) gudjon ( dot ) org>:
Hæ aftur

Jú, maður getur svo sem ekki gert annað en borið virðingu fyrir honum en það
er þannig með sum stórmenni að þeim er best að hætta eftir ákveðinn tíma. Ég
var alveg sammála honum um að það var réttara að kalla Linux, GNU/Linux en
síðan ekki meir.

Nei, þarna er ég ekki sammála.  Linux er Linux.  GNU/Linux er eitthvað hugarfóstur frá RMS.  Ok, Linux í dag hefði aldrei orðið eins og það er, ef GNU tækin væru ekki..... en hvar á að stoppa?  Hvað með:  Apache/GNU/Linux?  Eða... MySQL/APACHE/GNU/Linux ?   Eða:  KDE/GNOME/X11/MySQL/PostgreSQL/Subversion/Git/Wu-FTPD/Perl/Apache/BIND/Sendmail/GNU/LINUX?

Nei, að mínu mati er þetta krafs í bakkann hjá GNU, að komast á stýrikerfakortið... Hvað er HURD þeirra búinn að vera lengi í smíðum?

Annað hvort allt, eða ekkert.  Linux er Linux.  GNU/Linux er í mínum augum.... (pólitískt) skemmdarverk.

Og, já, ég er bæði sammála RMS og ég er ósammála honum.  Það gerir hann ekki að grínista.  Það gerir hann að hugsjónarmanni með ákveðnar skoðanir, og hann fær alveg prik fyrir það.

Kveðja,
--
EinarI