[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]
Re: rglug: Re: rglug: Re: [Fwd: Re: OLPC]
2008/6/3 Gudjon I. Gudjonsson <gudjon ( at ) gudjon ( dot ) org>:
> On Tuesday 03 June 2008 14:40:19 Bjarni R. Einarsson wrote:
>> On 2008-06-03, 14:20:16 (+0200), Gudjon I. Gudjonsson wrote:
>> > Getur einhver bent mér á póstlista þar sem fólk styður opna staðla, lítur
>> > frekar á Linux út frá viðskiptasjónarmiðum í bland við OSS frekar en
>> > ofurtrú á eitthvert "frelsi" sem í mínum huga er nær þrældómi.
>>
>> Eftir því sem ég best veit, er þetta eini virki póstlistinn á Íslandi
>> sem er að ræða þessi mál. Til eru margir aðrir póstlistar, en þeir eru
>> flestir svo rólegir að þeir gætu allt eins verið dauðir.
> Póstlistinn má alveg vera erlendur. Það eru málefnin sem ég er að leita eftir.
Málefnin, eða viðhorfið? :-)
> Það er engin illska í mér, ég er bara að reyna að tala skýrt :) Takk, ég fæ
> alltaf mjög góð svör á þessum lista þegar ég á í tæknilegum erfiðleikum.
> Þú mátt alveg benda mér á betra orð en ofsatrú og það er ekki tilgangur
> minn að særa neinn. Hins vegar vildi ég gjarna sjá smá efa um okkar eigin
> stefnu í stað endalauss haturs í garð Microsoft, ég held að það sé
> heillavænlegra.
> Eins og ég segi þá á ég oft í vandræðum með leyfismál, aðallega GPL, bæði
> varðandi "commercial" hugbúnað og Debian pakka. Umræða um slíkt hefur því
> miður kafnað í slagorðum um frelsi og að "commercial" hugbúnaður sé dauður.
> Fólki má alveg finnast það fyrir mér en þetta bara svarar ekki spurningunum
> mínum.
Mig rámar nú flesta þessa pósta þína og ef ég man rétt köfnuðu þeir
frekar í spurningum til þín, um það afhverju þú gætir ekki stuðst við
dfsg-compatible hugbúnað?
> Nú læt ég þessu lokið. Vona að ég hafi gert mig skiljanlegan án þess að særa
> nokkurn. Vona einnig að þið vitið um einhvern góðan póstlista fyrir mig en ég
> hef áfram áhuga á rglug varðandi tæknileg málefni.
Ég verð reyndar að benda þér á að viðhorf þitt hefur mér ekki þótt
vera til fyrirmyndar -- t.d. að tala um ofsatrú, og tala um að þú
vonir að enginn "trúi" stallman. Richard Stallman hefur mjög ákveðin
viðhorf og hvikar ekki frá þeim -- skoðanir hans eru áhugaverðar fyrir
alla, og það er engum til stækkunar að gera lítið úr honum fyrir
viðhorf sín sem eru vel rökstudd í hans mörgu ritgerðum.
Gangi þér vel að finna vettvang þar sem fólk er jafn andsnúið frjálsum
hugbúnaði og forsprökkum þeirrar fylkingar og þú virðist því miður
vera, en notar hann engu að síður.
Vonandi verðurðu áfram hér á RGLUG og kryddar umræðuna með þínu sjónarhorni :-)
kv.
Steinn