[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]
Re: rglug: Re: rglug: Re: [Fwd: Re: OLPC]
Guðjón hefur rétt fyrir sér að mínu mati, því að þó svo að í flestum
tilfellum sé æskilegt að hafa Open Source mtt aðgengis og væntanlega
varna gegn því að stuðningur hætti vegna sölu eða þess að fyrirtækið
skiptir um forstjóra eða eitthvað slíkt, þá er það svo að mjög margt
er einfaldlega ekki til í Open Source og getur einnig verið þess eðlis
að Open Source tefji málið eða -- í flestum tilfellum -- hafi ekki
áhuga á því sérsviði.
Ég gæti bent á dæmi, en læt ógert að sinni.
Ég vil hins vegar benda á klassísk skrif Erics S. Raymonds, "The
Cathedral and the Bazaar" um málefnið. Mér finnst hann nefnilega hitta
naglann beint á hausinn -- og keyra í kaf. :-) sjá:
http://www.catb.org/~esr/ (var áður á http://www.tuxedo.org/~esr/). Þá
eru ómissandi greinar hans:
A Brief History of Hackerdom
Homesteading the Noosphere
The Magic Cauldron
...sem ég held að séu innifaldar í prentuðu útgáfunni. Annars er þetta
allt saman aðgengilegt til niðurhals á vefnum hans.
Böðvar
2008/6/3 Gudjon I. Gudjonsson <gudjon ( at ) gudjon ( dot ) org>:
> On Tuesday 03 June 2008 14:40:19 Bjarni R. Einarsson wrote:
>> On 2008-06-03, 14:20:16 (+0200), Gudjon I. Gudjonsson wrote:
>> > Getur einhver bent mér á póstlista þar sem fólk styður opna staðla, lítur
>> > frekar á Linux út frá viðskiptasjónarmiðum í bland við OSS frekar en
>> > ofurtrú á eitthvert "frelsi" sem í mínum huga er nær þrældómi.
>>
>> Eftir því sem ég best veit, er þetta eini virki póstlistinn á Íslandi
>> sem er að ræða þessi mál. Til eru margir aðrir póstlistar, en þeir eru
>> flestir svo rólegir að þeir gætu allt eins verið dauðir.
> Póstlistinn má alveg vera erlendur. Það eru málefnin sem ég er að leita eftir.
>>
>> Mér þætti persónulega leitt að sjá þig hverfa héðan á vit annars lista,
>> þú hefur margt áhugavert að segja. En eins þætti mér vænt um ef þú
>> myndir hætta að stimpla mig (og aðra) sem "ofsatrúarmenn" vegna skoðana
>> okkar. Það er bara dónaskapur. Ég verð líka að viðurkenna að ég er ansi
>> hissa á heiftinni hjá þér, ég hef ekki orðið var við að hér sé mikið um
>> fjandskap gagnvart fólki sem ekki gleypir boðskap FSF í einu og öllu.
> Það er engin illska í mér, ég er bara að reyna að tala skýrt :) Takk, ég fæ
> alltaf mjög góð svör á þessum lista þegar ég á í tæknilegum erfiðleikum.
> Þú mátt alveg benda mér á betra orð en ofsatrú og það er ekki tilgangur
> minn að særa neinn. Hins vegar vildi ég gjarna sjá smá efa um okkar eigin
> stefnu í stað endalauss haturs í garð Microsoft, ég held að það sé
> heillavænlegra.
> Eins og ég segi þá á ég oft í vandræðum með leyfismál, aðallega GPL, bæði
> varðandi "commercial" hugbúnað og Debian pakka. Umræða um slíkt hefur því
> miður kafnað í slagorðum um frelsi og að "commercial" hugbúnaður sé dauður.
> Fólki má alveg finnast það fyrir mér en þetta bara svarar ekki spurningunum
> mínum.
>
> Nú læt ég þessu lokið. Vona að ég hafi gert mig skiljanlegan án þess að særa
> nokkurn. Vona einnig að þið vitið um einhvern góðan póstlista fyrir mig en ég
> hef áfram áhuga á rglug varðandi tæknileg málefni.
>
> Kveðja
> Gaui
>
>
>
>
--
"It is impossible to make anything foolproof because fools are so ingenious."
-- Edsel Murphy, dec.