[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: rglug: Re: rglug: Re: [Fwd: Re: OLPC]



On Tuesday 03 June 2008 14:40:19 Bjarni R. Einarsson wrote:
> On 2008-06-03, 14:20:16 (+0200), Gudjon I. Gudjonsson wrote:
> > Getur einhver bent mér á póstlista þar sem fólk styður opna staðla, lítur
> > frekar á Linux út frá viðskiptasjónarmiðum í bland við OSS frekar en
> > ofurtrú á eitthvert "frelsi" sem í mínum huga er nær þrældómi.
>
> Eftir því sem ég best veit, er þetta eini virki póstlistinn á Íslandi
> sem er að ræða þessi mál.  Til eru margir aðrir póstlistar, en þeir eru
> flestir svo rólegir að þeir gætu allt eins verið dauðir.
Póstlistinn má alveg vera erlendur. Það eru málefnin sem ég er að leita eftir.
>
> Mér þætti persónulega leitt að sjá þig hverfa héðan á vit annars lista,
> þú hefur margt áhugavert að segja.  En eins þætti mér vænt um ef þú
> myndir hætta að stimpla mig (og aðra) sem "ofsatrúarmenn" vegna skoðana
> okkar.  Það er bara dónaskapur. Ég verð líka að viðurkenna að ég er ansi 
> hissa á heiftinni hjá þér, ég hef ekki orðið var við að hér sé mikið um
> fjandskap gagnvart fólki sem ekki gleypir boðskap FSF í einu og öllu.
Það er engin illska í mér, ég er bara að reyna að tala skýrt :) Takk, ég fæ 
alltaf mjög góð svör á þessum lista þegar ég á í tæknilegum erfiðleikum.
    Þú mátt alveg benda mér á betra orð en ofsatrú og það er ekki tilgangur 
minn að særa neinn. Hins vegar vildi ég gjarna sjá smá efa um okkar eigin 
stefnu í stað endalauss haturs í garð Microsoft, ég held að það sé 
heillavænlegra.
    Eins og ég segi þá á ég oft í vandræðum með leyfismál, aðallega GPL, bæði 
varðandi "commercial" hugbúnað og Debian pakka. Umræða um slíkt hefur því 
miður kafnað í slagorðum um frelsi og að "commercial" hugbúnaður sé dauður. 
Fólki má alveg finnast það fyrir mér en þetta bara svarar ekki spurningunum 
mínum.

Nú læt ég þessu lokið. Vona að ég hafi gert mig skiljanlegan án þess að særa 
nokkurn. Vona einnig að þið vitið um einhvern góðan póstlista fyrir mig en ég 
hef áfram áhuga á rglug varðandi tæknileg málefni.

Kveðja
Gaui