[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: rglug: Re: [Fwd: Re: OLPC]



Sælt veri fólkið.

> Getur einhver bent mér á póstlista þar sem fólk styður opna staðla, lítur
> frekar á Linux út frá viðskiptasjónarmiðum í bland við OSS frekar en ofurtrú
> á eitthvert "frelsi" sem í mínum huga er nær þrældómi.

Ég held þessi lýsing eigi við marga á einmitt þessum póstlista, rglug.

Það er mjög misjafnt hvar á skalanum fólk er varðandi pragmatisma
annars vegar og hugmyndafræði hins vegar. Þetta hefur verið gegnum
gangandi í sögu opins hugbúnaðar. Gnome gluggakerfið var t.d. stofnað
af fólki sem var óánægt með þá nálgun KDE að nota Qt sem grunn, sem
var ekki 100% frjálst á þeim tíma.

Linus Torvalds er til dæmis "alræmdur" pragmatisti og margir á þessum
póstlista nota Mac sem sína aðal desktop tölvu :)

Bestu kveðjur,
Geir pragmatisti og stuðningsmaður FSF.



2008/6/3 Gudjon I. Gudjonsson <gudjon ( at ) gudjon ( dot ) org>:
> Hæ aftur
>
>> Það er ekki þar með sagt að ég sé sammála honum í einu og öllu,
>> en maðurinn er snillingur sem ég ber mikla virðingu fyrir.
> Jú, maður getur svo sem ekki gert annað en borið virðingu fyrir honum en það
> er þannig með sum stórmenni að þeim er best að hætta eftir ákveðinn tíma. Ég
> var alveg sammála honum um að það var réttara að kalla Linux, GNU/Linux en
> síðan ekki meir.
>>
>> Sumum kann að blöskra hversu samkvæmur sjálfum sér hann er hvað
>> varðar hugbúnaðarfrelsi - það er hans eina baráttumál og það gerir
>> hann á köflum kjánalegan þegar hann upphefur þá frelsisleit yfir
>> öll önnur sjónarmið.
> Ég á við það vandamál að stríða að ég vil hvorki nota Windows né Mac, aðallega
> vegna einokunartilburða þessara fyrirtækja. Þegar ég byrjaði að nota Linux
> fannst mér vera allt önnur stemming í hópnum og mig grunaði aldrei að
> þessi "frelsis" ofsatrú myndi verða svona hávær.
>
> Sjálfur hef ég áhuga á að sjá verkefni eins og OLPC verða að veruleika með
> hæfilegri blöndu af opnum hugbúnaði og hugbúnaði sem virkar.
>
> Ég hef áhuga á því að sjá nothæfan opinn staðal fyrir skrifstofuhugbúnað eins
> og til dæmis ODF og svo framvegis.
>
> Getur einhver bent mér á póstlista þar sem fólk styður opna staðla, lítur
> frekar á Linux út frá viðskiptasjónarmiðum í bland við OSS frekar en ofurtrú
> á eitthvert "frelsi" sem í mínum huga er nær þrældómi.
>
> Kveðja
> Gaui
>
>
>