[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]
Re: rglug: Re: rglug: Re: [Fwd: Re: OLPC]
On 2008-06-03, 14:20:16 (+0200), Gudjon I. Gudjonsson wrote:
> Getur einhver bent mér á póstlista þar sem fólk styður opna staðla, lítur
> frekar á Linux út frá viðskiptasjónarmiðum í bland við OSS frekar en ofurtrú
> á eitthvert "frelsi" sem í mínum huga er nær þrældómi.
Eftir því sem ég best veit, er þetta eini virki póstlistinn á Íslandi
sem er að ræða þessi mál. Til eru margir aðrir póstlistar, en þeir eru
flestir svo rólegir að þeir gætu allt eins verið dauðir.
Mér þætti persónulega leitt að sjá þig hverfa héðan á vit annars lista,
þú hefur margt áhugavert að segja. En eins þætti mér vænt um ef þú
myndir hætta að stimpla mig (og aðra) sem "ofsatrúarmenn" vegna skoðana
okkar. Það er bara dónaskapur. Ég verð líka að viðurkenna að ég er ansi
hissa á heiftinni hjá þér, ég hef ekki orðið var við að hér sé mikið um
fjandskap gagnvart fólki sem ekki gleypir boðskap FSF í einu og öllu.
En kannski er ég bara samdauna því, því ég er einn af þeim. ;-)
--
Bjarni Rúnar Einarsson
bre ( at ) klaki ( dot ) net
http://bre.klaki.net/
Use http://bre.klaki.net/bre/contact.shtml to bypass my spam filters.
PGP: 02764305, B7A3AB89