[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: rglug: Re: [Fwd: Re: OLPC]



Hæ aftur

> Það er ekki þar með sagt að ég sé sammála honum í einu og öllu,
> en maðurinn er snillingur sem ég ber mikla virðingu fyrir.
Jú, maður getur svo sem ekki gert annað en borið virðingu fyrir honum en það 
er þannig með sum stórmenni að þeim er best að hætta eftir ákveðinn tíma. Ég 
var alveg sammála honum um að það var réttara að kalla Linux, GNU/Linux en 
síðan ekki meir.
>
> Sumum kann að blöskra hversu samkvæmur sjálfum sér hann er hvað
> varðar hugbúnaðarfrelsi - það er hans eina baráttumál og það gerir
> hann á köflum kjánalegan þegar hann upphefur þá frelsisleit yfir
> öll önnur sjónarmið.
Ég á við það vandamál að stríða að ég vil hvorki nota Windows né Mac, aðallega 
vegna einokunartilburða þessara fyrirtækja. Þegar ég byrjaði að nota Linux 
fannst mér vera allt önnur stemming í hópnum og mig grunaði aldrei að 
þessi "frelsis" ofsatrú myndi verða svona hávær.

Sjálfur hef ég áhuga á að sjá verkefni eins og OLPC verða að veruleika með 
hæfilegri blöndu af opnum hugbúnaði og hugbúnaði sem virkar.

Ég hef áhuga á því að sjá nothæfan opinn staðal fyrir skrifstofuhugbúnað eins 
og til dæmis ODF og svo framvegis.

Getur einhver bent mér á póstlista þar sem fólk styður opna staðla, lítur 
frekar á Linux út frá viðskiptasjónarmiðum í bland við OSS frekar en ofurtrú 
á eitthvert "frelsi" sem í mínum huga er nær þrældómi.

Kveðja
Gaui