[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: rglug: Re: [Fwd: Re: OLPC]



Ég hef ekkert skoðað þetta fyrr en núna. Ég gúgglaði og kíkti á
Wikipedia ofl. og ég sé ekki betur en að Stallman hafi mikið til síns
máls.
Átti firmware-ið ekki að vera OS skv. upprunalegri lýsingu? Ég sé ekki
betur. Það er eins og M$ gleypi allt, ef ekki beint framan frá þá með
því að infiltrera.

Böðvar

2008/6/3 Bjarni R. Einarsson <bre ( at ) klaki ( dot ) net>:
> On 2008-06-03, 07:49:08 (+0200), Gudjon I. Gudjonsson wrote:
>> > Stallman um XP á OLPC:
>> >
>> > http://www.fsf.org/blogs/rms/can-we-rescue-olpc-from-windows
>> Ég vona að fólk líti á þennan Stallman sem grínista. Er einhver á listanum sem
>> trúir því sem maðurinn segir?
>
> Ég.
>
> Það er ekki þar með sagt að ég sé sammála honum í einu og öllu,
> en maðurinn er snillingur sem ég ber mikla virðingu fyrir.
>
> Sumum kann að blöskra hversu samkvæmur sjálfum sér hann er hvað
> varðar hugbúnaðarfrelsi - það er hans eina baráttumál og það gerir
> hann á köflum kjánalegan þegar hann upphefur þá frelsisleit yfir
> öll önnur sjónarmið.
>
> En að kalla hann grínista, hér á póstlista áhugafólks um Linux og
> annan frjálsan hugbúnað, er ansi hæpin staða.  Maðurinn fann upp
> hugtakið "frjáls hugbúnaður", sem var og er róttæk hugmynd.  Það
> að hann sé enn talinn róttækur og skrítinn er bara merki um að
> hugbúnaðargeirinn eigi enn langt í land hvað þessa hluti varðar.
>
> Eða ert þú kannski grínistinn?  :-)
>
> --
> Bjarni Rúnar Einarsson
>  bre ( at ) klaki ( dot ) net
>  http://bre.klaki.net/
>
> Use http://bre.klaki.net/bre/contact.shtml to bypass my spam filters.
> PGP: 02764305, B7A3AB89
>



-- 
"It is impossible to make anything foolproof because fools are so ingenious."
 -- Edsel Murphy, dec.