Tek undir þetta. Hafa 3 section, 1 nokkurskonar orðabók/hugtaka/jargon fæll,
annar væri howtos og/eða reynslusögur af áhugaverðum vandamálum sem hafa
verið leyst og jafnlíklegt að aðrir þurfi að leysa og þriðja svona semi-promo
material/bakgrunnsuppl. fyrir áhugasama.
--
"Everything that can be invented has been invented."
-- Charles H. Duell, Commissioner, U.S. Office of Patents, 1899.
Yours etc.
Einar Th.
On Thursday 24 November 2005 20:09, Ymir Vigfusson wrote:
> Sælir!
>
> Ég er sammála þessu. Kannski er orðið tímabært að draga útlínur að því
> _hvað_ við viljum að Wikiið standi fyrir. Hér er tillaga.
> *) Wikiið ætti að geta kynnt hugtök og hugmyndir fyrir áhugasömu fólki
> (t.a.m. unglingum) sem þarf ekki að vera mjög tæknilega sinnað, og
> getað vísað fólki á hvar frekari fróðleik sé að finna.
> *) Wikiið ætti að vera "reynslubanki" þar sem kunnugir ausa úr
> viskubrunni sínum. Þannig yrði það vettvangur fyrir íslenska Linux
> notendur (sér í lagi meðlimi RGLUG) að læra eitthvað nýtt, og vita í
> hvaða kofa hægt sé að leita innanlands. Þarna gætu einmitt verið
> upplýsingar um LaTeX, Gnuplot og Octave þar sem góður hluti íslenskra
> notanda stundar einhver vísindi.
> *) Wikiið ætti að vera einskyns orðabók þar sem fólk sem leitar að
> almennum upplýsingum um Linux og skyld efni á íslensku getur nálgast
> samsvarandi ensk techno-jargon orð ásamt vísunum á staði þar sem hægt
> er að fræðast meira. Það er yfirleitt alltaf fljótlegt að finna hluti
> á Google - ef þú veist hverju þú ert að leita að. Wikiið gæti því
> hjálpað þeim sem skortir orðaforðann fyrir Google.
>
> Kveðja,
> Ýmir
>
> On 11/24/05, Örn Arnarson <orn ( at ) arnarson ( dot ) net> wrote:
> > Þar sem enginn hefur svarað þessu vil ég allavega segja fyrir mig að
> > mér finnst þetta prýðishugmynd. Spurning hvort það sé betra að hafa
> > sér síðu fyrir slíkt eða ekki.
> >
> > Kv,
> > Örn
> >
> > Þann 23.10.2005 skrifaði Bjorn Patrick Swift <bjorn ( at ) swift ( dot ) is>:
> > > Sælir félagar
> > >
> > > Ég fór að velta því fyrir mér í kvöld, þegar ég var að vinna skýrslu
> > > fyrir skólann, hvort það væri einhver áhugi fyrir því að setja inn
> > > ýmiskonar leiðbeningar (howto-style) á RGLUG Wiki'inn. Ekki einungis um
> > > hvernig eigi að setja upp Linux og komast af stað, eins og svo algengt
> > > er, heldur hvernig maður geti leyst hin ýmsu verkefni með aðstoð frjáls
> > > hugbúnaðar.
> > >
> > > Um endalausa hluti hægt að skrifa. Þar sem ég var að gera skýrslu í
> > > eðlisfræði í kvöld tek ég sem dæmi hvernig útfæra slíkt í LaTeX /
> > > OpenOffice, hvernig plotta megi gröf í gnuplot með óvissum og finna
> > > bestu línur. Fleira má telja upp; basic hljóðvinnsla í audacity,
> > > fylkjareikningar í Octave eða bara hvað sem er. Ég tek nú kannski ekki
> > > svo djúpt í árina að ég vilji skrifa ítarlega leiðbeiningar um neitt
> > > þessara forrita; heldur meira eitthvað sem hugsað er til að koma fólki
> > > af stað - benda á réttu tólin.
> > >
> > > Þetta eru að vísu nokkuð sérhæfð dæmi, maður er kannski ekki að plotta
> > > eðlisfræðigröf á hverjum degi (amk ekki ég, blessunarlega!) - en ef
> > > maður er að fara að framkvæma eitthvað þessu líkt, og aflar sér
> > > þekkingar til, að skella inn smá tölu um það á RGLUG svo aðrir geti
> > > nýtt sér það.
> > >
> > > Ef það er áhugi fyrir einhverju svona væri ég amk tilbúinn að henda
> > > einhverju þangað inn, svona þegar manni leiðist heimalærdómurinn.
> > > Einnig eru margir sem hafa nú þegar skrifað slíkar leiðbeningar á sínar
> > > persónulegu heimasíður (tam margir með einhverskonar LaTeX leiðbeningar
> > > hér uppí Háskóla) og kanna mætti hvort þeir væru viljugir að setja þær
> > > inn á RGLUG Wiki'inn.
> > >
> > > En já, þá lýkur þankahríð kvöldsins.
> > >
> > > Kveðja,
> > > Björn Swift
Attachment:
pgpbuper2jddV.pgp
Description: PGP signature