[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

PowerLine tenging



Sælir RGLUGgarar.

Ég var að fá mér Planet Powerline to Ethernet Bridge (2 stk að sjálfsögðu) og 
var að prófa að setja það upp hjá mér. Ég er með "tölvuherbergi" uppi, en 
langar að geta komist í samband við hinar tölvurnar og á Internetið um 
ADSL-ið uppi á lapptoppinn niðri (og ef ég skyldi setja einhverja tölvu 
niður).

Ekkert forrit fylgir með á diski til þess að stilla dulkóðunina (56 bita) 
fyrir Linux, heldur aðeins fyrir Windoze.

Málið er sem sé það, að á nýjustu tölvunni uppi (þeirri sem ég er á núna), 
gekk eins og í sögu að tengjast og setja upp lykilorðið fyrir brýrnar, en 
Lapptoppurinn finnur hvoruga brúna (þó að öll sömu ljósin séu blikkandi), og 
er ég búinn að prófa hann bæði uppi og niðri og þá brýrnar á mismunandi 
tenglum.

Ég er ekki sérlega mikið ínni í netkortum, en þessi lapptoppur hefur ekki átt 
í vandræðum með að finna nokkur net. Ég hef notað hann nettengdan í vinnunni, 
en mest lítið nettengdan heima.

Með þessu forriti er skilst mér bara verið að setja upp lykilorðið í 
dulkóðunarkerfið á brúna auk þess sem forritið leitar uppi aðrar tengdar brýr 
í sama kerfi.

Ég finn ekkert um þetta vandamál á netinu, svo að ég velti fyrir mér hvort 
þetta hafi hugsanlega eitthvað með fasta IP tölu sem sett er inn á netkortið 
í lapptoppinum (Clevo D27ES), en netkortið er innbygggt í móðurborðið.

Ég verð að játa að nettengingar og Windoze eru mér illskiljanleg enda hef ég 
alltaf átt í erfiðleikum með að tengja tölvur í gegnum það stýrikerfi.

Ennfremur er ég að leita að sams konar forriti fyrir Linux (er til einhvers 
staðar -- óbein tilvísun í slíkt í handbókinni frá Planet).

Öll hjálp væri vel þegin.

Bkv.

Böðvar Björgvinsson